Jólarúmföt með fallegri ósk um Gleðileg jól
Gleðileg jól rúmfötin hafa náð miklum vinsældum undanfarin ár. Þau koma í tveimur litum, hvít með rauðum útsaum og rauð með hvítum útsaum. Jólarúmfötin eru einnig fáanleg í fleiri stærðum. Frábær jólagjöf fyrir þá sem eiga allt.
Bómullin í rúmfötunum er ofin úr 100% umhverfisvænni Pimabómull sem tryggir langa þræði , þéttan vefnað, einstaka mýkt og varanlega endingu. Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni .
Nýjungin hjá okkur núna er að pakka rúmfötunum inn í glæsilegt púðaver (40X40) sem eykur á fegurð og notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá hluti í rúmið í stað tveggja áður. Enn er aðalmarkmið okkar að láta náttúruna njóta og henda engu
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.
Hvít lök passa vel með þessum rúmfötum.