Silkimjúkt bambuslak með 40 cm kanti og teygju á endunum
Heimaey bambuslak frá Lín Design er ofið úr 400 þráða bambus sem gefur því einstaklega mjúka og fágaða áferð. Lakið er með 40 cm djúpum kanti, teygju á báðum endum og er faldað á hliðunum. Þessi útfærsla auðveldar að setja lakið á dýnuna og heldur því fallega á sínum stað.
Efnið er rakadrægt, loftgott og hitatemprandi og hjálpar líkamanum að halda þægilegu hitastigi yfir nóttina. Bambus hentar vel fyrir viðkvæma húð og skapar ferskt, mjúkt og notalegt svefnumhverfi.
Lakið er OEKO-TEX® og GOTS vottað og framleitt án skaðlegra efna.
Eiginleikar
✔ 40 cm djúpur kantur
✔ Teygja á báðum endum og faldað á hliðunum
✔ 400 þráða bambus – silkimjúkur, þéttur og vandaður
✔ Hitatemprandi og rakadrægt efni
✔ Loftgott og þægilegt fyrir svefn
✔ Hentar vel fyrir viðkvæma húð
✔ OEKO-TEX® og GOTS vottað
✔ Framleitt án skaðlegra efna
✔ Fallegur náttúrulegur glans og lúxusleg áferð
✔ Fáanlegt í sex stærðum og fjórum litum
Litir í boði
Drappaður ·Espressobrúnn · Grár · Hvítur
Aðrar vörur í Heimaey bambuslínunni
• Rúmföt úr 400 þráða bambus
• Barnalök úr 400 þráða bambus
• Stök koddaver 50×70 cm
• Augngrímur úr bambus
Þvottaleiðbeiningar
Þvo við 30°C á viðkvæmu-, bambus-, ullar- eða silkiprógrammi.
Notið milt fljótandi þvottaefni fyrir viðkvæm efni, til dæmis ull, silki eða bambus.
Forðist þvottakodda, mýkingarefni, ilmperlur og sterk bleikjandi efni.
Loftþurrkið eða þurrkið við mjög lágan hita.
Bambus getur minnkað örlítið í þvotti og náttúrulegur glans getur breyst ef notuð eru sterk þvotta- eða ilmefni.
Með réttri umhirðu heldur bambusinn mjúkri áferð sinni og fallegum glans lengur.





















