Hvönn dúkur
Hvönnin er falleg á borðið. Hvönnin var um aldir hluti af fæðu Íslendinga og víða voru hvannagarðar í kringum bæi á öldum áður. Hvönnin var mikilvæg útflutningsvara fyrr á tímum og var notuð sem gjaldmiðill. Í Grágás, elsta lagariti Íslendinga, er kveðið á um viðurlög við stuldi á hvönn.
Hvönnin er mikilvæg lækningajurt og er nú að finna í lyfjum sem talin eru vinna á lifrarkvillum, smiti og eitrunum og brjósthimnubólgu ásamt mörgu öðru. Fersk hvönn er oft notuð sem krydd enda góður bragðbætir.
Í upphafi sumars er hvönnin ljósgræn en breytir um lit þegar líður að hausti. Þá dekkist hvönnin og verður brún að lit.
Hvönnin frá Lín Design er síðsumar hvönn og því ljósbrún að lit. Blómið er bróderað í dúkinn og líkir eftir síðsumar hvönn sem er orðin ljósbrún að lit.
Dúkarnir koma í stærðum 150X250 og 150X300 í beisuðum lit með bróderingu
Dúkurinn er ofinn úr 100% polyester og er því straufrír og auðvelt að ná úr honum blettum.
Þvoist við 40°- 60°C (sjá þvottaleiðbeiningar).