Íslenska skjaldarmerkið
Íslenska skjaldarmerkið eru glæsileg rúmföt. Skjaldarmerkið er sómi lands og þjóðar. Skjaldarmerkið frá Lín Design er hvítt og grátt með glæsilegri bróderingu (hvít, grá eða silfur). Tignarleg bródering á skjaldarmerkinu og útkoman er glæsilegur rúmfatnaður þar sem gæðin eru hámörkuð.
Rúmfötin eru ofin úr 410 þráða Pima damaski bómull sem tryggir langa þræði, þéttan vefnað, einstaka mýkt og varanlega endingu. Gera má ráð fyrir að bómullin þurfi þrjá til fjóra þvotta til að draga í sig þann vökva sem hún þarf til þess að ná hámarks mýkt. Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina. Með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni.
Nýjungin hjá okkur núna er að pakka rúmfötunum inn í glæsilegt púðaver (40X40) sem eykur á fegurð og notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá hluti í rúmið í stað tveggja áður. Enn er aðalmarkmið okkar að láta náttúruna njóta og henda engu.
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.