Damask ofin rúmföt
Kötlu rúmfötin eru damask ofin grá lituð án útsaums. Mynstrið er kassalagað
Rúmfötin eru damask ofin og eru sérstaklega valin fyrir þá sem gera kröfur um mikla mýkt og gæði
Bómullin í rúmfötunum er ofin úr 100% 410 þráða Pima bómull sem tryggir langa þræði , þéttan vefnað, einstaka mýkt og varanlega endingu. Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni .
Rúmfötunum er pakkað í glæsilegt púðaver (40X40) svæfilsver sem eykur á fegurð og notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá hluti í rúmið í stað tveggja áður. Enn er aðalmarkmið okkar að láta náttúruna njóta og henda engu
Öllum sængurfatnaði frá Lín Design er lokað með tölum en koddaverin hafa tölulaust hliðarop sem smeygja má koddanum inn um.
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.