Laufkrans rúmföt
Laufkrans frá Lín Design er ofin úr sérvalinni 380 þráða 100% Pima bómull með höráferð, sem er einstaklega mjúk og endingargóð bómull.
Mynstrið í rúmfötunum er bæði prentað og saumað í efnið. Dökku laufblöðin eru prentuð í efnið og svo eru grábláu laufblöðin ofin í rúmfötin þessi áferð gefur mjög flott útlit .
Í svefnherberginu hefjast draumar okkar. Það er því mikilvægt að velja góðar dúnsængur og rúmföt sem búa okkur undir betri svefn.
Sængurver 140X200 koddaver 50X70 púði (svæfilsver) 40X40Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni .
Við pökkum rúmfötunum inn í glæsilegt púðaver (40X40) svæfilsver sem eykur á fegurð og notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá hluti í rúmið í stað tveggja áður. Enn er aðalmarkmið okkar að láta náttúruna njóta og henda engu
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.