Frá hugmynd að hönnun

Við hjá Lín Design erum stöðugt að hanna og þróa nýjar vörur.  Á hverju vori kynnum við nokkur ný íslensk blómamynstur.  Fyrir eitt sumarið var unnið að tveimur blómum; Biðukollu & Hjartarfa. Hér er hægt að sjá hvernig hönnuðirnir unnu að sumarlínunni og hvernig blómin verða til frá hugmynd að hönnun.

Biðukollan er áberandi í íslenskri náttúru. Í upphafi var ætlunin að leggja áherslu á blómið og fræin.  Eftir nokkrar prufur var ákveðið að hanna blómið ásamt stofni í grasi sem vex í kringum biðukolluna. 

Hjartarfi er smágert blóm sem vex víða. Hugmynd hönnuðar var að teikna lítil hjörtu í stað laufblaða. Útkoman er laglegt mynstur sem er bróderað á sængurfatnað, bæði fyrir börn og fullorðna.