Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga hjá Lín Design ehf.
Almennt
Vinnsla Lín DESIGN ehf. á persónuupplýsingum þeirra sem skrá sig á póstlista fyrirtækisins og vilja fá send tilboð frá söluaðila Lín DESIGN fer fram á grundvelli laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“). Í tilkynningu þessari má finna upplýsingar sem Lín Design ehf. ber að veita þátttakendum samkvæmt persónuverndarlögum.
Af hverju vinnur Lín DESIGN ehf. með persónuupplýsingar skráðra?
Lín DESIGN ehf. safnar og vinnur með persónuupplýsingar skráðra í þeim tilgangi að gefa honum færi á að taka þátt í leikjum og draga út vinningshafa. Samþykkir skráður einnig að fá send tilboð frá söluaðila Lín DESIGN og er jafnframt unnið með upplýsingar hans í markaðssetningartilgangi.
Á hvaða lagagrundvelli vinnur Lín DESIGN ehf. með persónuupplýsingar skráðra?
Skráðum er frjálst að skrá sig og byggir vinnsla á persónuupplýsingum á samþykki hans, sbr. 1. tl. 9. gr. persónuverndarlaga.
Er upplýsingum skráðra deilt með þriðja aðila?
Lín DESIGN ehf. notar upplýsingatæknikerfi sem auðvelda skráningu, utanumhald, og miðlun á upplýsingum. Þjónustuaðilar kerfanna kunna að hafa aðgang að upplýsingum í tengslum við þjónustu þeirra við kerfið. Trúnaðarsamkomulag er gert við viðkomandi sem kveður á skyldu hans til að gæta fyllsta trúnaðar, tryggja öryggi og fara eingöngu með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli fyrirtækisins.
Hver eru réttindi skráðra?
Einstaklingar njóta ákveðinna réttinda samkvæmt persónuverndarlögum, svo sem réttar til að afturkalla samþykki sitt, fá aðgang að gögnum, fá rangar eða villandi upplýsinga leiðréttar, persónuupplýsingum verði eytt, hindra að unnið verði með persónuupplýsingar, flytja eigin gögn og leggja inn kvörtun hjá Persónuvernd.
Hvert á ég að leita fyrir frekari upplýsingar?
Þú getur haft samband við okkur í gegnum netfangið sala@lindesign.is ef þú vilt fá frekari upplýsingar um hvernig Lín DESIGN ehf. meðhöndlar þínar persónuupplýsingar.
Upplýsingar um ábyrgðaraðila
Lín DESIGN ehf. er í hlutverki ábyrgðaraðila þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinga um einstaklinga sem tilkynning þessi nær til.
Samskiptaupplýsingar ábyrgðaraðila:
Lín DESIGN ehf., kt. 610294-2279
Smáratorgi 1, 201 Kópavogur
Símanúmer: 5332220
Netfang: lindesign@lindesign.is