Umhverfisstefna

Eitt af markmiðum Lín Design er að hanna og framleiða vistvænar vörur. Markmið okkar hefur verið að draga úr notkun óumhverfisvænna umbúða svo sem umbúða úr plasti og pappír. Flestar vörur Lín Design eru pakkaðar í bómullarumbúðir sem eru endurnýtanlegar. Rúmfötnum er pakkað í skrautpúðaver og barnarúmfötin í dúkkurúmföt sem nýta má áfram í rúmið fyrir dúkkuna.
Í stað þess að notast við plastinnkaupapoka framleiðir Lín Design eigin poka sem saumaðir eru úr 100% bómull. Einnig hvetur Lín Design viðstkipavini sína til notkunar á fjölnota gjafapokum

Vörurnar frá Lín Design eru unnar úr sérvalinni bómull sem er ræktuð og unnin án eiturefna. Litaður rúmfatnaður er unnin án skaðlegra efna, hvort sem er fyrir fólk eða umhverfið. Litarefnin eru án málma, formaldehýð eða annarra eiturefna. Litirnir í rúmfatnaðinum frá Lín Design eru samkvæmt bestu vitund og samvisku unnir úr umhverfisvænum og „húðvingjarnlegum“ efnum.

Megi draumar þínir rætast
Klukkur