FÍFA barnarúmfötin frá Lín Design eru framleidd úr 100% mjúkri Pima bómull, 380 þráða, með fallegu fífumynstri sem er ofið beint í sængurverið með bómullarþráðum.
Pima bómull er þekkt fyrir langa og sterka þræði sem gefa efninu einstaka mýkt, þéttan vefnað og góða endingu. Rúmfötin eru mjúk og þægileg við viðkvæma húð barnsins.
Tvö fífumynstur eru ofin ofarlega í sængurverið og gefa rúmfötunum fallegt og tímalaust yfirbragð.
Settið inniheldur:
- 1 stk. sængurver – 70 × 100 cm eða 100X140
- 1 stk. koddaver – 35 × 50 cm
Fífan – íslensk náttúra
Fífan er einstaklega mjúk og létt og hefur verið bæði til gagns og yndisauka í gegnum tíðina. Hún vex í mýrlendi og víða um Ísland má sjá fallegar fífubreiður sem einkenna íslenska náttúru.
Þvottur: Þvoist við 40°C. Sjá þvottaleiðbeiningar.
Lagersöluvara: Skilafrestur er 14 dagar gegn framvísun kvittunar. Vara þarf að vera ónotuð og í söluhæfu ástandi. Lagersöluvörur fást á meðan birgðir endast og því er ekki hægt að tryggja skipti í aðra stærð eða lit.











