Burkni bróderuð handklæðasett
Fallegt og vandað bað handklæði úr umhverfisvænni þykkri bómull sem dregur vel í sig bleytu.
Íslenskar burknategundir eru bróderaðar í handklæðið sem gerir það einstakt.
Handklæðin eru ofin úr sérvalinni bómullarblöndu sem er einstaklega rakadræg. Þau eru hringofin til að hámarka þéttleika og mýkt.
Til að handklæðin verði rakadræg þarf að þvo þau nokkrum sinnum. Hægt er að leggja handklæði í bleyti áður en þau eru þvegin í fyrsta sinn. Með þessu dregur bómullin strax í sig raka, þéttist og mýkist áður en þau eru þvegin (sjá þvottaleiðbeiningar).
Litun bómullar í handklæðalínu Lín Design er unnin samkvæmt Oeke–Tex Standard. Þetta þýðir að litunin er gerð án mengandi efna. Litunin er samkvæmt bestu vitund unnin með umhverfisvænum og húðvingjarnlegum efnum.
Stærðir: 30X30, 40X80. 70X140 og handklæðasett ( 1 stk af hverri stærð)
Vefnaður: 100% bómull
Þéttleiki: 550 gsm