Dúkar í gráum tónum – Tímalaus hönnun og endingargæði
Gefðu borðstofunni þinni fágað yfirbragð með þessum vönduðu dúkum úr 100% bómullarkanvas. Dúkarnir eru fáanlegir í fallegum gráum og dökkgráum tónum og hannaðir til að endast – hvort sem er í daglegri notkun eða fyrir sérstök tilefni.
Efnið er þétt ofið og heldur lit vel. Dúkarnir eru fáanlegir í fjölbreyttum stærðum sem henta bæði hefðbundnum og stærri borðum:
-
Hringdúkar: 185X185 cm, 220X220 cm
-
Rétthyrndir dúkar: 150×250 cm, 150×300 cm
Hægt er að fá samstæðar tauservíettur í stíl fyrir heildstæða og stílhreina borðstofuuppsetningu.
Dúkarnir henta jafnt á heimilið sem og á veitingastaði.
Má þvo við 40°C. Dúkarnir geta hlaupið lítillega í þvotti og er því mælt með að forþvo áður en þeir eru notaðir í fyrsta sinn.