Silki hárteygja
Silki hárteygjan frá Lín Design er hönnuð til að haldast vel. Hárteygjurnar henta öllum hártegundum, þunnu, þykku og krulluðu hári.
Silki hárteygjan er saumuð úr 100% Mulberry silki sem er einstaklega mjúkt og endingargott. Hárteygjan verndar hárið gegn sliti. Hárteygjan fer einstaklega vel á hendi og hægt að nota hana sem armband líka og skella í hárið hvenær sem er.
Silki hárteygjurnar eru úr 100% náttúrulegu hágæða Mulberry silki (22 momme) og eru silkimjúkar. Þær henta þeim sem vilja mikinn lúxus. Silkið er eitt sterkasta og mýksta efni sem framleitt er og er eitt best geymda fegurðar leyndarmálið. Silki er náttúrulegt efni sem verndar bæði húð og hár. Silkið vinnur gegn fitumyndun bæði í hári og húð. Hentar vel viðkvæmri húð og vinnur gegn bólum og hrukkumyndun. Silkið veitir náttúrulega hitajöfnun og andar.
Hægt er að fá einnig silki koddaver og silki augngrímur úr Mulberry silki.
Silkið er fáanlegt í gráu, hvítu, svörtu og bleiku.
Þvoist á 30 gráðum fyrir viðkvæman þvott eða á silkiprógrammi og setjið ekki í þurrkara (sjá þvottaleiðbeiningar).