Lauf rúmföt
Falleg rúmföt skreytt með laufum öðrum megin og grá hinum megin. Því er hægt að nota þau á tvo vegu og fallegt að blanda saman mynstri og einlitu.
Rúmfötin eru ofin úr 540 þráða Pima bómullarsatíni sem tryggir langa þræði, þéttan vefnað, einstaka mýkt, varanlega endingu og heldur sér eins þvott eftir þvott.
Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina. Með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni .
Nýjungin hjá okkur núna er að pakka rúmfötunum inn í glæsilegt púðaver (40X40), svæfilsver sem eykur á fegurð og notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá hluti í rúmið í stað tveggja áður. Enn er aðalmarkmið okkar að láta náttúruna njóta og henda engu.
Æskilegast er að þvo rúmfötin við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).