Asana Relaxed Quarter-zip er fágaður og einstaklega þægilegur toppur sem auðvelt er að klæða upp eða niður. Toppurinn er með afslöppuðu sniði, löngum ermum og kraga með stuttum rennilás sem hægt er að hafa opinn eða lokaðan eftir tilefni.
Asana™-efnið er mjúkt, teygjanlegt og með matt, slétt og fínlega burstað yfirborð. Efnið hefur meðalþykkt sem gerir toppinn hentugan einan og sér eða undir jakka. Paraðu hann við samlit Asana-buxur fyrir stílhreint heildarlúkk eða við gallabuxur fyrir afslappaðri klæðnað.
- Afslappað og þægilegt snið
- Upphækkaður kragi með stuttum rennilás
- Langar og rúmgóðar ermar
- Einstaklega mjúkt og teygjanlegt Asana™-efni
- Matt, slétt og fínlega burstað yfirborð
- Meðalþykkt efni, um 240–250 g/m²
- Mjög góð teygja
- Fæst í dökkbláu og svörtu
- Stærðir XS–XXL
Asana™-efni
Efnið er úr endurunnu pólýesteri og spandexi og er vottað samkvæmt Global Recycled Standard (GRS).
Asana™-efnið er einstaklega mjúkt, slétt og teygjanlegt. Það hefur allt að 230% teygju og fylgir því hreyfingum líkamans á þægilegan hátt. Hvort sem þú ert á ferðinni, í vinnunni eða að slaka á veitir efnið gott hreyfifrelsi og þægindi allan daginn.
Umhirða
- Þvoið á köldu prógrammi eða við mest 30°C
- Snúið flíkinni við fyrir þvott
- Þvoið með svipuðum litum og efnum
- Hengið til þerris
- Ekki setja í þurrkara
- Forðist hita
- Ekki nota bleikiefni
- Ekki strauja
- Ekki þurrhreinsa

















