Asana Double Pleat buxurnar eru fágaðri útgáfa af hinum vinsælu Asana Relaxed buxum. Þær eru með tvöföldum fellingum að framan og aðeins víðara, flæðandi sniði sem gefur þeim elegant og klæðilegt yfirbragð.
Fellingarnar eru festar efst en opnast síðan mjúklega og skapa fallegt fall. Hátt og aðsniðið mittið situr þægilega, en víðar skálmarnar veita gott rými og mikið hreyfifrelsi.
• Tvöfaldar fellingar að framan
• Hátt og aðsniðið mitti
• Víðara og flæðandi snið
• Skásettir hliðarvasar með földum YKK-rennilásum
• Gerviklauf að framan
• Mjúkt og teygjanlegt Asana™-efni
• Þéttar og ekki gegnsæjar við hreyfingu
• Fást í svörtu og dökkbrúnu
Asana™-efni
Efnið er úr endurunnu pólýesteri og spandexi og er vottað samkvæmt Global Recycled Standard (GRS).
Asana™-efnið er einstaklega mjúkt, slétt og teygjanlegt. Það hefur allt að 230% teygju og fylgir því hreyfingum líkamans á þægilegan hátt. Hvort sem þú ert á ferðinni, í vinnunni eða að slaka á veitir efnið gott hreyfifrelsi og þægindi allan daginn.
Umhirða
• Þvoið á röngunni við 30°C
• Þvoið með svipuðum litum og efnum
• Hengið til þerris
• Ekki setja í þurrkara
• Ekki nota bleikiefni
• Ekki strauja
• Ekki þurrhreinsa


















