Áttablaðarós – 600 þráða satín rúmföt
Glæsileg silkimjúk umhverfisvæn 600 þráða rúmföt ofin í satín vefnaði.
Áttablaðarósin hefur lengi verið algeng í íslenskum hannyrðum. Þessi gamla en sígilda hönnun byggir á fornu mynstri sem minnir margt á frostrós. Áttablaðarósin er form sem sameinar menningu okkar og fallega hönnun. Áttablaðarósin er byggð á munstri úr sjónabók Jóns Einarssonar bónda og hagleiksmanns í Skaftafelli á 18. öld. Bókin hefur að geyma mörg munstur ætluð til hannyrða og er varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands.
Áttablaðarósin frá Lín Design er bróderuð í 600 þráða satín sængurfatnað sem gerir rósina nútímalega og afar fallega. Rósin er saumuð í sængurverið með satínþráðum og því helst litur í bróderingunni lengi. Bómullin í rúmfötunum tryggir langa þræði, þéttan vefnað, einstaka mýkt og varanlega endingu. Gera má ráð fyrir að bómullin þurfi þrjá til fjóra þvotta til að draga í sig þann vökva sem hún þarf til þess að ná hámarks mýkt. Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina. Með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni.
Nýjungin hjá okkur núna er að pakka rúmfötunum inn í glæsilegt púðaver (40X40) sem eykur á fegurð og notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá hluti í rúmið í stað tveggja áður. Enn er aðalmarkmið okkar að láta náttúruna njóta og henda engu.
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.