380 þráða Pima-bómull
Mjúk íslensk hönnun með prentuðu mynstri.
Blóðberg er ein af fegurstu og ilmríkustu jurtum íslenskrar náttúru, þekkt fyrir sín smágerðu bleiku blóm sem mynda fallegt andstæðuspil við græna stilka. Blóðbergsfletta er rómantískt og ferskt mynstur þar sem jurtin fær að njóta sín í nútímalegri prentun á silkimjúkri Pima-bómull.
Koddaverið er ofið úr 380 þráða Pima-bómull sem tryggir langa þræði, þéttan vefnað og mjúka lúxusáferð. Efnið andar vel, er hitatemprandi og mýkist með hverjum þvotti.
Upplýsingar
• Stærð: 50×70 cm
• 100% langþráða Pima-bómull
• 380 þráða vefnaður
• Prentað blóðbergsmynstur
• OEKO-TEX® STANDARD 100 vottað
• Lagersöluvara – fæst á meðan birgðir endast
Hönnun & frágangur
Koddaverið er með tölulausu hliðaropi sem gerir auðvelt að setja koddann inn og tryggir fallegt og hreint útlit.
Þvottaleiðbeiningar
Má þvo við 40°C.
Forðast mýkingarefni til að varðveita mýkt og endingu efnisins.
Skilmálar lagersölu
Skilafrestur er 14 dagar gegn framvísun kvittunar.









