Cuisine ofnhanskarnir sameina fallega hönnun og praktíska virkni í tímalausri eldhúslínu. Röndótta mynstrið gefur hlýlegt og klassískt yfirbragð sem minnir á notalegan bistrostíl og passar jafnt í nútímaleg sem sveitaleg eldhús.
Ofnhanskarnir eru úr mjúkri bómull með góðri bólstrun sem verndar hendur við heita potta, bökunarplötur og eldamennsku dagsins. Fallegt mynstur og náttúrulegir litir gera þá jafnframt að stílhreinu smáatriði í eldhúsinu.
Passa einstaklega vel með svuntum, viskastykki og pottaleppum úr sömu Cuisine línu og skapa samræmt og hlýlegt útlit í eldhúsinu.
Litir:
Ólífugrænt & drappað – röndótt
Offwhite & espresso – röndótt
Offwhite & drappað – röndótt
Rustrautt & drappað – röndótt
Stærð: 16 x 32 cm
Efni: 100% bómull
Vottun: CE-merkt vara















