Cuisine viskastykkin sameina klassíska hönnun og notagildi í fallegri 2-pack línu fyrir eldhúsið. Röndótta mynstrið gefur hlýlegt og tímalaust yfirbragð sem passar jafnt í nútímaleg sem sveitaleg eldhús.
Settið inniheldur tvö viskastykki með mismunandi áferð – annað með sléttri og klassískri áferð en hitt með fallegri vöffluáferð sem gefur hlýlega og fallega heild. Þau eru bæði praktísk í daglegri notkun og falleg sem hluti af eldhúsinnréttingunni.
Cuisine línan passar einstaklega vel saman við svuntur, pottaleppa og ofnhanska í sömu línu og skapar samræmt og stílhreint útlit í eldhúsinu.
Litir:
Grænt & drappað – röndótt
Brúnt & offwhite – röndótt
Stærð: 50 x 70 cm
Efni: 100% bómull













