Dröfn kósýsett úr modal
Silkimjúkt modal · Þægindi allan daginn · Fallegt og afslappað snið
Dröfn kósýsettið er úr einstaklega mjúku og teygjanlegu modalefni sem fellur fallega að líkamanum. Efnið er létt, rakadrægt og hitatemprandi og veitir góð þægindi hvort sem settið er notað sem náttfatnaður, heimaföt eða afslappaður hversdagsfatnaður.
Settið samanstendur af stuttermabol og buxum. Bolurinn er með mjúku og afslöppuðu sniði en buxurnar eru með þægilegri teygju í mitti og praktískum vösum.
- Silkimjúkt, létt og teygjanlegt modalefni
- Rakadrægt og hitatemprandi
- Buxur með teygju í mitti og vösum
- Stuttermabolur með afslöppuðu sniði
- OEKO-TEX® vottað
- Íslensk hönnun
- Framleitt í Evrópu
Efni: 94% modal og 6% elastan
Litir: Ljósdrappað og svart
Stærðir: XS–XL
Þvottur: Þvoist við 30°C. Fylgið þvottaleiðbeiningum á flíkinni.















