EIKIN rúmföt – náttúrulega mjúk gæði úr múslínbómull
EIKIN er framleidd úr 100% mjúkri bómullarmúslíni (muslin cotton). Muslin-bómull er einstaklega mjúk og létt, með náttúrulega öndun og hitatemprun sem hentar sérstaklega vel við viðkvæma húð. Efnið heldur raka frá húðinni og stuðlar að betri svefni. Það þarf ekki að strauja – bylgjast fallega og er einfalt í meðhöndlun.
✔️ Efni:
100% múslín bómull
OEKO-TEX® STANDARD 100 vottað
✔️ Stærðir:
Fáanlegt í fjórum stærðum fyrir fullorðna:
-
140×200 cm
-
140×220 cm
-
200×200 cm
-
200×220 cm
Koddaver 50×70 cm fylgir (tvö koddaver fylgja 200X200 og 200×220 settinu).
Hægt er að bæta við aukakoddaverum í ljósgrátóna
Settið er pakkað í 40×40 cm púðaver úr sama efni – sem nýtist sem aukapúði.
Barnastærðir (70×100 og 100×140 cm) eru einnig fáanlegar,
✔️ Litur:
Fæst í náttúrulegum tónum – grátóna, brúnn og drappaður
✔️ Sérstakir eiginleikar:
-
Sængurver lokast með tölum að neðan
-
Innanverð bönd til að festa við Lín Design dúnsængur
-
Pökkun í 40×40 cm púðaver – umhverfisvænt og nytsamlegt
-
Þvoist við 40°C (sjá þvottaleiðbeiningar).
♻️ Endurnýting og samfélagsleg ábyrgð:
Við hvetjum viðskiptavini til að koma með notuð rúmföt aftur til okkar þegar þau eru orðin lúin. Þú færð 20% afslátt af nýju setti og gömlu rúmfötin fara til Rauða krossins til frekari notkunar eða endurvinnslu.