Tímalausar prjónabuxur frá Fixoni með mjúkri og fallegri prjónáferð. Buxurnar eru með teygju í mittinu sem veitir barninu gott og þægilegt svigrúm.
Þær eru úr 100% lífrænni bómull sem er einstaklega mjúk við viðkvæma húð barnsins. Fallegar hversdagsbuxur sem auðvelt er að para við samfellur, boli og peysur.
Buxurnar fást í tveimur litum:
- Tibetan Red – djúprauður
- Navy Blazer – dökkblár
Upplýsingar:
- 100% lífræn bómull
- GOTS-vottaðar – CERES-0366
- Mjúk prjónáferð
- Teygja í mitti
- Unisex
- Frá danska merkinu Fixoni
Þvottaleiðbeiningar: Þvoist við 40°C. Má ekki setja í þurrkara. Leggið flíkina flata til þerris. Má ekki strauja, bleikja eða þurrhreinsa.



















