Sjarmerandi prjónakjóll frá Fixoni í fallegum, djúprauðum lit sem nefnist Tibetan Red. Kjóllinn er með síðum ermum og fallegri hneppingu við bringuna sem auðveldar að klæða barnið í og úr.
Kjóllinn er prjónaður úr 100% lífrænni bómull og er því einstaklega mjúkur og þægilegur við húðina. Falleg og tímalaus flík sem hentar jafnt hversdags sem við hátíðlegri tilefni.
• 100% lífræn bómull
• GOTS-vottaður – CERES-0366
• Langar ermar
• Hnepping við bringu
• Litur: Tibetan Red
• Frá danska merkinu Fixoni
Þvottaleiðbeiningar: Þvoist við 40°C. Má ekki setja í þurrkara. Leggið flíkina flata til þerris. Má ekki strauja, bleikja eða þurrhreinsa.













