Einstaklega mjúk og þægileg langerma samfella frá Fixoni í dökkbláa litnum Navy Blazer. Samfellan er úr teygjanlegu, riffluðu efni sem fellur vel að líkamanum og veitir barninu gott svigrúm til hreyfingar.
Modal gefur efninu silkimjúka áferð og ásamt bómullinni verður það einstaklega þægilegt við viðkvæma húð barnsins. Samfellan er með kringlóttu hálsmáli, fallegri hneppingu við bringuna og smellum á milli fóta sem auðvelda bleiuskipti.
Hún passar fullkomlega við Fixoni rib buxurnar í sama lit og saman mynda flíkurnar mjúkt og fallegt sett.
- 47% modal
- 47% bómull
- 6% elastan
- Mjúkt og rifflað efni
- Langar ermar
- Kringlótt hálsmál
- Hnepping við bringu
- Smellur á milli fóta
- OEKO-TEX® STANDARD 100 – 2276-364 DTI
- Unisex
- Litur: Navy Blazer – dökkblár
- Frá danska merkinu Fixoni
Þvottaleiðbeiningar: Þvoist við 40°C. Má setja í þurrkara við lágan hita. Má ekki strauja, bleikja eða þurrhreinsa.












