Frostrósin hefur lengi verið algeng í íslenskum hannyrðum. Þessi gamla en sígilda hönnun byggir á fornu mynstri frostrósa . Rósin er form sem sameinar menningu okkar og fallega hönnun.
Frostrósin frá Lín Design er bæði bróderuð og prentuð á 600 þráða Pima cotton satín sængurfatnað sem gerir rúmfatasettið nútímalegt og afar fallegt. Rósin er saumuð tvennskonar sporum,perluspori og löngum þráðum í sængurverið sem gerir settið einstakt. Bómullin (Pima bómull) í rúmfötunum tryggir langa þræði, þéttan vefnað, einstaka mýkt og varanlega endingu. Gera má ráð fyrir að bómullin þurfi þrjá til fjóra þvotta til að draga í sig þann vökva sem hún þarf til þess að ná hámarks mýkt. Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina. Með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni.
Rúmfötunum er pakkað inn í glæsilegt púðaver (40X40) sem eykur á fegurð og notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá hluti í rúmið í stað tveggja áður. Enn er aðalmarkmið okkar að láta náttúruna njóta og henda engu.
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.