Þrjár stærðir í fallegu setti
Handklæðasettin frá Lín Design sameina mjúka bómull, fallegt útlit og notagildi. Notaleg viðbót á baðherbergið og nytsamleg gjöf fyrir fólkið þitt.
Veldu einfalt, einlitt sett í gráu eða hvítu eða handklæði með fallegum útsaumi: Blóðbergi, Bláklukku, Biðukollu eða Áttablaðarós.
Hvert sett inniheldur
- 1 lítið handklæði, 30 × 30 cm.
- 1 handklæði, 40 × 70 cm.
- 1 baðhandklæði, 70 × 140 cm.
Efni og útfærslur
Öll handklæðin eru hringofin úr 100% bómull, mjúk og rakadræg. Bróderuðu handklæðin eru með 550 g/m² efnisþyngd og einlitu handklæðin með 600 g/m² efnisþyngd.
Umhirða
Þvoðu handklæðin fyrir fyrstu notkun og slepptu mýkingarefni til að viðhalda rakadrægni. Bróderuðu handklæðin má þvo við 40°C og einlitu handklæðin við 60°C.



















