Dýrmæt minning um litlu hendurnar og fæturna
Litlar hendur og fætur stækka ótrúlega hratt. Með Happy Hands bleklausum blekpúðum getur þú varðveitt hand- og fótaför barnsins á einfaldan og fallegan hátt.
Blekpúðarnir eru hannaðir þannig að húð barnsins snertir aldrei blekið. Höndin eða fóturinn er lagður á hreina hlið púðans og farinu síðan þrýst yfir á pappír. Útkoman er skýrt og fallegt far án þess að blek berist á viðkvæma húð barnsins.
Tilvalið til að setja í ramma, minningarbók eða varðveita með öðrum dýrmætum munum frá fyrstu mánuðum barnsins. Þetta er einnig einstaklega falleg sængur-, skírnar- eða barnagjöf fyrir nýbakaða foreldra.
Helstu eiginleikar
- Bleklaus aðferð – húð barnsins snertir ekki blekið
- Hentar fyrir hand- og fótaför nýbura og ungbarna
- Einfalt og þægilegt í notkun
- Skapar skýr og falleg för
- Svartur litur
- Falleg minning fyrir foreldra og fjölskyldu
- Tilvalin sængur-, skírnar- eða barnagjöf
Fylgið ávallt leiðbeiningunum á umbúðunum við notkun.













