Heimaey 400 þráða bambusrúmföt – silkimjúk, rakadræg og GOTS vottuð
OEKO-TEX® og GOTS vottuð bambusrúmföt fyrir börn og fullorðna.
Heimaey bambuslínan frá Lín Design er hönnuð fyrir þau sem vilja upplifa einstaka mýkt, náttúrulegan glans og betri svefn. Þéttur 400 þráða bambusvefurinn er silkimjúkur viðkomu, loftgóður, rakadrægur og hitatemprandi.
Efnið hjálpar líkamanum að halda þægilegu hitastigi yfir nóttina og skapar ferskt, mjúkt og notalegt svefnumhverfi allt árið um kring.
Línan inniheldur
Rúmföt í öllum stærðum fyrir börn og fullorðna
Lök úr 400 þráða bambus
Stök koddaver
Augngrímur úr bambus
Litir í boði
Drappaður, brúnn, grár og hvítur
Hönnun og frágangur
Öll sængurver eru lokuð með tölum.
Koddaver eru með tölulausu hliðaropi sem auðveldar ísetningu.
Á innanverðum sængurverum eru bönd sem festast við Lín Design dúnsængur og koma í veg fyrir að sængin renni til.
Stærðir og innifalið í settum
Einstaklingsstærðir
140×200 cm – 1 stk sængurver
140×220 cm – 1 stk sængurver fyrir lengri sængur
Innifalið: 1 stk 50×70 cm koddaver + 1 stk 40×40 cm púðaver
Hjónastærðir
200×200 cm – 1 stk sængurver
200×220 cm – 1 stk sængurver
Innifalið: 2 stk 50×70 cm koddaver + 1 stk 40×40 cm púðaver
Aukahlutir
Lök úr 400 þráða bambus í öllum stærðum
Stök koddaver 50×70 cm
Augngrímur úr bambus
Þvottaleiðbeiningar
Þvo við 30°C á viðkvæmu-, bambus-, ullar- eða silkiprógrammi.
Notið milt fljótandi þvottaefni fyrir viðkvæm efni, til dæmis ull, silki eða bambus.
Forðist þvottakodda, mýkingarefni, ilmperlur og sterk bleikjandi efni.
Loftþurrkið eða þurrkið við mjög lágan hita.
Bambus getur minnkað örlítið í þvotti og náttúrulegur glans getur breyst ef notuð eru sterk þvotta- eða ilmefni.
Með réttri umhirðu heldur bambusinn mjúkri áferð sinni og fallegum glans lengur



















