Heimaey Melur – bambusrúmföt fyrir börn með bangsaverum
Heimaey Melur eru silkimjúk bambusrúmföt fyrir börn með fíngerðum ljósbrúnum röndum. Hlýir og náttúrulegir litatónarnir minna á íslenska mela og skapa rólegt og notalegt yfirbragð í barnaherberginu.
Rúmfötin eru ofin úr 400 þráða bambusefni sem er einstaklega mjúkt, loftgott, rakadrægt og hitatemprandi. Efnið er mjúkt við viðkvæma húð og stuðlar að þægilegu svefnumhverfi fyrir litla kroppa.
Bönd eru innan í sængurverinu til að festa sængina og halda henni betur á sínum stað yfir nóttina.
Með hverju setti fylgja lítil sængurver og koddaver fyrir uppáhaldsbangsann í sama röndótta stíl. Barnasængurverinu er pakkað inn í bangsasængurverið og barnakoddaverinu í bangsakoddaverið. Skemmtileg og einstaklega krúttleg gjafahugmynd.
Rúmfötin fást í tveimur stærðum:
- Sængurver 70 × 100 cm og koddaver 35 × 50 cm
- Sængurver 100 × 140 cm og koddaver 35 × 50 cm
- Bangsasængurver og bangsakoddaver fylgja báðum stærðum
Helstu eiginleikar
- 400 þráða bambusefni
- Silkimjúk og slétt áferð
- Loftgóð, rakadræg og hitatemprandi
- Mjúk við viðkvæma húð
- Bönd innan í sængurverinu halda sænginni á sínum stað
- Bangsarúmföt í sama stíl fylgja settinu
- Skemmtileg gjafapakkning
- GOTS- og OEKO-TEX® vottuð

















