Keramikblóm – Holtasóley
Berið nokkra dropa af ilmolíu á keramikblómið og fyllið herbergið með uppáhalds ilminum ykkar. Blómið í gifsinu dregur í sig ilmolíuna og losar ilminn smá saman. Mælum með að prófa Blóðberg, Lyng eða Lavenderinn frá Lín Design lífrænir ilmir í háum gæðum. Hægt er að hengja blómið upp t.d. í bílinn eða á hurðarhúninn einnig er blómið einstaklega fallegt skraut á borði hvort sem er í herbergi, stofu eða baðherbergi eða setja í fataskáp eða skúffu.
Þjóðarblómið okkar Holtasóleyin varð fyrir valinu þegar ákveðið var að hanna ilmblóm hjá Lín Design enda Holtasóleyin í miklu uppáhaldi hjá hönnuðum Lín Design
Stærð: 7X7 cm