Huggi samfella
Hugga unbarnalínan hjá Lín Design sækir innblástur í hugmynd sem við þekkjum öll en það er að telja kindur og sofna vært.
Íslenska sauðkindin er áberandi í íslensku landslagi og við völdum stóran og sterkan forystusauð sem myndefni. Hrúturinn Huggi, sem er hannaður úr mjúkri bómull, passar börnin með stóru hornunum sínum, huggar þau og faðmar. Huggi kemur í lítilli fatalínu, auk sængurvers, baðslopps og fleiri fylgihluta s.s. huggapúða sem segir ”faðmaðu mig!”, gæludýrið Huggi sem faðmar og passar börnin.
Mýktin er mikilvæg fyrir minnstu krílin og því er 100% bómull í allri línunni.
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).