Í öruggum faðmi – mýkt og hlýja í barnaherbergið
Í öruggum faðmi barnarúmfötin frá Lín Design eru með fallegri vatnslitamynd af birnu sem heldur utan um sofandi húninn sinn. Á koddaverinu er minni mynd í sama stíl.
Sængurverið er með hvítum grunni og kanti í antíkbleikum tón. Bakhliðin er einlit í sama bleika lit. Rúmfötin eru ofin úr 540 þráða Pima-bómull með satínvefnaði sem gefur þeim mjúka og slétta áferð.
Með báðum barnastærðum fylgir lítið dúkku- eða bangsarúmfatsett með sömu fallegu myndinni. Þannig getur litli vinurinn fengið rúmföt í stíl.
Stærðir og innihald
- 70 × 100 cm: Sængurver og koddaver 35 × 50 cm, ásamt litlu dúkku- eða bangsarúmfatsetti.
- 100 × 140 cm: Sængurver og koddaver 35 × 50 cm, ásamt litlu dúkku- eða bangsarúmfatsetti.
Litla sængurverið fyrir dúkku eða bangsa er með smellulokun.
Eiginleikar
- 540 þráða satínofin Pima-bómull
- Mjúk og slétt áferð
- Mynd af birnu og húni á sængurverinu
- Hvít framhlið með antíkbleikum kanti og einlit bleik bakhlið
- Dúkku- eða bangsarúmföt í stíl fylgja
- OEKO-TEX® vottuð
- Íslensk hönnun frá Lín Design











