Stafrófið rúmföt
Stafrófið er hannað fyrir káta krakka sem eru að læra stafrófið og vilja æfa sig í lestri.
Stafrófið er teiknað af hönnuði Lín Design með skemmtilegum myndum til að auðvelda barninu að þekkja stafina. Á koddaverinu er textinn “syngdu með,, ásamt fyrstu stöfunum í stafrófinu sem gerir rúmfötin að skemmtilegum og lærdómslegum kost fyrir börnin.
Rúmfötin fást í tveimur stærðum; 100×140 og 140X200.
Bómullin í rúmfötunum er ofin úr 540 þráða umhverfisvænni Pima bómullarsatíni, sem tryggir langa þræði, þéttan vefnað, einstaka mýkt og varanlega endingu. Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni. Við mælum með þvotti við 40 gráður (sjá þvottaleiðbeiningar).
Rúmfötunum er pakkað í púðaver (40×40) með öllu stafrófinu á sem er einkar þægilegt að halda á og læra stafrófið svo er líka gott að kúra í hann.
Stafrófið er fallegur sængurfatnaður og nytsamlegur sem hentar vel til gjafa og auðveldar börnum lestrarnámið. Við hjá Lín Design trúum að vandir hlutir gleðji og veiti vellíðan.
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.