Jólarós rúmföt með krosssaumsmynstri
Einstaklega falleg satínofin jólarúmföt , mynstrið í rúmfötunum er prentað með airsprey aðferðið , Jólarósin frá Lín Design sækir í gamlar íslenskar hefðir, mynstrið er með krosssaum og fallegum texta á púðaverinu með ósk um,, GLEÐILEG JÓL,,
Frábær jólagjöf fyrir þá sem eiga allt
Bómullin í rúmfötunum er ofin úr 540 satínofinni Pima bómull sem tryggir langa þræði , þéttan vefnað, einstaka mýkt og varanlega endingu. Sængurverið lokast að neðan með tölum. Á innanverðum sængurverunum eru bönd til þess að binda í Lín Design dúnsængina með þessu móti kemur þú í veg fyrir að sængurverið sé laust inn í sænginni .
Rúmfötunum er pakkað inn í glæsilegt púðaver (40X40) sem eykur á fegurð og notagildi. Eigandinn er því að fá þrjá hluti í rúmið í stað tveggja áður. Enn er aðalmarkmið okkar að láta náttúruna njóta og henda engu
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.
Hvít lök passa vel með þessum rúmfötum