Íslenskar jólahefðir á borðið
Þrettán íslenskir jólasveinar, Grýla og Leppalúði prýða þennan fallega jólalöber frá Lín Design. Bróderaðar persónurnar og nöfn þeirra skapa skemmtileg smáatriði sem gaman er að skoða, fyrir bæði börn og fullorðna.
Hlýr náttúruliturinn dregur fram litríkan útsauminn og fer fallega með kertum, jólagreinum og uppáhaldsjólaskrautinu. Löberinn hentar jafnt á borðstofuborðið, stofuborðið eða skenkinn yfir aðventuna og jólin.
- Efni: 80% bómull og 20% pólýester
- Skreyting: Bróderaðir íslenskir jólasveinar, Grýla og Leppalúði
- Stærðir: 35×150 cm og 35×200 cm
- Þvottur: 40°C samkvæmt þvottaleiðbeiningum













