Íslensk jólastemning við borðið
Jólatré frá Lín Design er fallegur jóladúkur með mynstri sem sækir innblástur í gamlar íslenskar jólahefðir. Jólatré, lynggreinar og kerti fléttast saman í ofnu mynstri sem gefur dúknum hátíðlegt yfirbragð.
Dúkurinn skapar hlýlega umgjörð um samverustundir yfir aðventuna og jólin. Leggðu á borð með fallegum borðbúnaði, kertum og jólagreinum og leyfðu mynstrinu að njóta sín.
- Efni: 80% bómull og 20% pólýester
- Mynstur: Ofið mynstur af jólatrjám, lynggreinum og kertum
- Stærðir: 150×250 cm og 150×300 cm
- Umhirða: Fylgið þvottaleiðbeiningum á vörunni








