Láru leggings
Fallegar leggings úr Láru línunni. Leggings buxurnar eru bleikar og hægt er að fá kjóla í stíl við.
Láru og Ljónsa línan er úr bókunum um hina lífsglöðu Láru og bangsann hennar Ljónsa sem fylgir henni í hvert fótmál, höfundur bókanna er Birgitta Haukdal.
Efnið í buxunum er blanda úr umhverfisvænni bómull og elastane sem heldur sér eins þvott eftir þvott. Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Markmið okkar er að hanna notalegar flíkur sem gleðja og veita vellíðan.
Þegar barnið þitt er vaxið upp úr sinni stærð hefur þú kost á að koma með flíkina og fá aðra með 20% afslætti. Sé flíkin enn í góðu standi sendum við hana til Rauða krossins sem sér um að koma henni til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu spörum við öll og nýtum vörurnar betur.