Ljónsi hettupeysa
Falleg hettupeysa úr Ljónsa línunni. Peysan er grá í grunninn með með mynd af Ljónsa og hettan er fóðruð með bláu. Hægt er að fá fallegar buxur við peysuna.
Láru og Ljónsa línan er úr bókunum um hina lífsglöðu Láru og bangsann hennar Ljónsa sem fylgir henni í hvert fótmál, höfundur bókanna er Birgitta Haukdal.
Efnið í peysunni er blanda úr umhverfisvænni bómull og elastane sem heldur sér eins þvott eftir þvott.
Peysan kemur í stærð 2-6 ára.
Markmið okkar er að hanna notalegar flíkur sem gleðja og veita vellíðan.
Þegar barnið þitt er vaxið upp úr sinni stærð hefur þú kost á að koma með flíkina og fá aðra með 20% afslætti. Sé flíkin enn í góðu standi sendum við hana til Rauða krossins sem sér um að koma henni til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu spörum við öll og nýtum vörurnar betur.