Lukkutröll smekkur
Innblástur hönnuða Lín Design í þessari glæsilegu línu eru íslenskar þjóðsögur náttúra og íslensk tröll ! Tröllin eru teiknuð af Freydísi Kristjánsdóttur listamanni.
Lukkutrölls smekkirnir eru úr 96% umhverfisvænni bómull og 4% teygju sem heldur sér eins þvott eftir þvott.
Smekkirnir passa vel með nýju ungbarnalínununni Tröllakrútt og Lukkutröll. Hægt er að nota smekkina á 2 vegu gráir öðrum megin og Lukkutröll mynstur hinum megin.
Lagersöluvara: Skilafrestur er 14 dagar gegn framvísun kvittunar. Vara þarf að vera ónotuð og í söluhæfu ástandi. Lagersöluvörur fást á meðan birgðir endast og því er ekki hægt að tryggja skipti í aðra stærð eða lit.









