Micro Cotton – notalegur lúxus á baðherbergið
Micro Cotton handklæðin frá Lín Design eru úr 100% bómull með fínum, löngum bómullartrefjum sem gefa þeim mjúka og dúnkennda áferð. Þau eru þykk og rakadræg, notaleg eftir sturtu eða slakandi bað.
Handklæðin fást í drapplitu og gráu. Fallegur ofinn kantur gefur þeim fágað yfirbragð sem fellur vel að ólíkum baðherbergjum.
- Efni: 100% bómull – Micro Cotton.
- Efnisþyngd: 600 g/m².
- Litir: Drapplitað og grátt.
- Stærðir: 40 × 70 cm og 70 × 140 cm.
- Litun: Samkvæmt OEKO-TEX® STANDARD 100.
Umhirða
Má þvo við 40°C með mildu þvottaefni. Þvoðu handklæðin fyrir fyrstu notkun og slepptu mýkingarefni til að viðhalda rakadrægni. Notaðu lágan hita ef þau eru þurrkuð í þurrkara.










