Sofðu unga ástin mín – mjúk rúmföt með fallegri bróderingu
Sofðu unga ástin mín barnarúmfötin frá Lín Design eru hlýleg gjöf fyrir lítið kríli. Framan á sængurverinu er bróderað hjarta með textanum „Sofðu unga ástin mín“ – fallegt smáatriði sem gerir rúmfötin að einstakri sængurgjöf eða skírnargjöf.
Rúmfötin eru ofin úr 600 þráða Pima-bómullarsatíni. Langþráða bómullin gefur efninu mjúka og slétta áferð, ásamt vönduðum og endingargóðum vefnaði.
Dúkku- eða bangsarúmföt fylgja með
Með báðum barnastærðum fylgir auka sængurverasett fyrir dúkku eða bangsa, í sama lit og stíl og barnarúmfötin. Falleg viðbót fyrir litla vininn. 🤍
Eiginleikar
- 100% Pima-bómull með 600 þráða satínvefnaði
- Múk og slétt áferð úr langþráða bómull
- Bróderað hjarta með textanum „Sofðu unga ástin mín“
- OEKO-TEX® vottuð
- Fást í hvítu með hvítri bróderingu og gráu með grárri bróderingu
- Dúkku- eða bangsarúmföt í sama stíl fylgja með
- Íslensk hönnun frá Lín Design
Stærðir og innihald
- 70 × 100 cm: sængurver og koddaver 35 × 50 cm
- 100 × 140 cm: sængurver og koddaver 35 × 50 cm
Dúkku- eða bangsarúmföt fylgja báðum stærðum.













