Íslensk ull og hlýja fyrir heimilið
Ullarteppin frá Lín Design eru úr 100% íslenskri ull og framleidd á Íslandi í samstarfi við KIDKA. Notalegt er að vefja teppinu utan um sig í sófanum eða leggja það yfir rúmið fyrir aukna hlýju.
Teppið er tvíhliða, með hefðbundinni áttablaðarós öðru megin og yrjóttu mynstri hinu megin. Yfirsaumaðir kantar gefa því fallegan frágang og aukna endingu. Falleg og nytsamleg gjöf sem nýtist um ókomin ár.
- Efni: 100% íslensk ull.
- Framleiðsla: Unnið á Íslandi í samstarfi við KIDKA.
- Stærðir: 100 × 130 cm og 140 × 200 cm.
- Mynstur: Áttablaðarós öðru megin og yrjótt mynstur hinu megin.
- Frágangur: Yfirsaumaðir kantar.
Fimm litir
Sjöfn – bleikt, Gefn – blátt, Dröfn – brúnt/beis, Flóki – svart og Skuggi – dökkgrátt.


























