Upphlutssvunta – íslensk hefð í eldhúsinu
Upphlutssvuntan frá Lín Design sækir innblástur í íslenska upphlutinn, sem er hluti af þjóðbúningaarfi okkar. Blóma- og laufútsaumurinn minnir á hefðbundið skraut búningsins og gefur svuntunni fallegt og hátíðlegt yfirbragð.
Svuntan setur skemmtilegan svip á eldamennskuna og móttöku gesta. Falleg og nytsamleg gjöf fyrir þau sem kunna að meta íslenskar hefðir og hönnun.
- Litir: Svört með silfurútsaumi eða rauð með svörtum útsaumi.
- Stærð: 85 × 66 cm.
- Pakkning: Kemur í fallegri gjafapakkningu.
- Efni: Sérhúðaður pólýester sem auðvelt er að þvo.
























