Vatnajökull dúnteppið frá Lín Design er létt, hlýtt og einstaklega fjölnota teppi sem hentar fullkomlega fyrir íslenskt veðurfar — hvort sem það er notað í útilegu, í sumarbústaðnum, á pallinum, í bílnum, á ferðalagi eða heima í sófanum.
Teppið er fyllt með 200 g af 100% RDS-vottuðum andadún, sem veitir náttúrulega einangrun án þess að vera þungt. Ytra byrðið er úr slitsterku og vatnsfráhrindandi nylon sem hrindir frá sér raka, óhreinindum og dýrahárum — sem gerir teppið sérstaklega hentugt fyrir útivist, ferðalög og notkun utandyra.
Einn stærsti kosturinn við Vatnajökull dúnteppið er að það er með smellum og því er hægt að smella því saman og nota sem hlýja skikkju eða poncho. Þannig geturðu haldið á kaffibolla, bók eða notið útiverunnar með frjálsar hendur á köldum kvöldum.
Teppið kemur í sér poka og tekur lítið pláss, sem gerir það auðvelt að taka með sér hvert sem er.
Eiginleikar
✓ 200 g 100% andadúnn – léttur, hlýr og náttúrulega einangrandi
✓ RDS-vottaður dúnn
✓ OEKO-TEX® vottað
✓ Vatnsfráhrindandi ytra byrði
✓ Slitsterkt nylon sem dregur ekki í sig dýrahár
✓ Með smellum – hægt að nota sem skikkju/poncho
✓ Kemur í geymslu- og ferðapoka
✓ Stærð: 140×200 cm
✓ Hentar í útilegu, sumarbústað, ferðalög, útiveru og sófann
✓ Frábær gjöf fyrir útivistarfólk og þá sem elska kósý stundir
Þvottaleiðbeiningar
Má þvo við 30°C á viðkvæmu prógrammi. Notið milt þvottaefni og forðist mýkingarefni. Þurrkið við lágan hita eða loftþurrkið vel. Gott er að hrista teppið reglulega til að viðhalda lofti og fyllingu í dúninum.














