BJÖRK er ný barnalína frá Lín Design innblásin af skógarlífinu og náttúrunni. Fallegir jarðarlitir einkenna þessa fallegu barnalínu ljós, grænn og beis. BJÖRKIN er framleidd úr 100% mjúkri bómullarmúslíni (muslin cotton). Muslin bómull þarf ekki að strauja efnið bylgjast og er einfalt að meðhöndla
Hettuhandklæðið er fullkomið fyrir litlu krílin eftir bað eða heita pottinn of frábært í sólarfríið
Hettuhandklæðið er fóðrað með 100% bómull sem er rakadræg og þurrkar vel , handklæðið er einstaklega létt, mjúkt og þornar hratt eftir notkun.
Efni: 100% múslín bómull og fóðrað með 100% bómull
Stærð:80X80
Lín Design vörurnar eru OEKO-TEX ® STANDARD 100 vottaðar.
Þvoist á 40 gráðum (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar varan er orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.