Mjúk pointelle samfella með fíngerðu gatamynstri
Fixoni pointelle síðerma samfella er úr léttu og mjúku pointelle-prjónaefni með fíngerðu gatamynstri sem andar vel og hentar einstaklega vel viðkvæmri barnahúð.
Samfellan er með fallegum pífukanti við hálsmálið sem gefur henni mjúkt og klassískt yfirbragð. Hægt er að opna við hálsmálið og á milli fóta með smellum sem auðveldar klæðningu og bleyjuskipti.
Þægileg og falleg grunnflík sem hentar bæði ein og sér eða undir aðrar flíkur.
Eiginleikar
✔ GOTS vottað – Organic (CERES-0366)
✔ Lífrænt og húðvænt efni
✔ Fíngert og loftandi pointelle gatamynstur
✔ Smellur við háls og á milli fóta
Litir
Varan fæst í tveimur mjúkum og tímalausum litum – ljósbeige og ljósbleikum – sem passa fallega inn í barnaherbergið og henta bæði hversdags og við sérstök tilefni.
GOTS votuð gæði sem tryggja mýkt, öryggi og ábyrgari framleiðslu – fyrir þau sem skipta mestu máli.













