Kimono sloppur með blúndu
Glæsilegur og þægilegur sloppur í kimono stíl með blúndu á ermum. Einnig kemur kimono sloppurinn án blúndu. Sloppurinn er afar smart og auðvelt er að bregða honum yfir sig og binda saman með linda að framan.
Sloppinn má nota jafnt heima við sem annars staðar og er hann t.a.m. tilvalinn í sumarfríið. Tilvalið er að auka notagildi sloppsins og kaupa bol og buxur (stuttar/síðar) í stíl úr sömu línu.
Slopparnir eru saumaðir úr 96% umhverfisvænni viscose og 4% teygju.
Þeir koma í þremur litum, bleikum, svörtum og gráum lit í stærðum S, M, L og XL.
Þvoist á 30 gráðum (sjá þvottaleiðbeiningar).