Láru hettukjóll
Fallegur hettukjóll úr Láru línunni. Kjóllinn er grár í grunninn með bleikri hettu, stroffi og með mynd af hinni lífsglöðu Láru og bangsann hennar Ljónsa. Hægt er að fá fallegar leggings við kjólinn.
Láru og Ljónsa línan er úr bókunum um hina lífsglöðu Láru og bangsann hennar Ljónsa sem fylgir henni í hvert fótmál, höfundur bókanna er Birgitta Haukdal.
Efnið í kjólnum er blanda úr umhverfisvænni bómull og elastane sem heldur sér eins þvott eftir þvott. Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Markmið okkar er að hanna notalegar flíkur sem gleðja og veita vellíðan.
Þegar barnið þitt er vaxið upp úr sinni stærð hefur þú kost á að koma með flíkina og fá aðra með 20% afslætti. Sé flíkin enn í góðu standi sendum við hana til Rauða krossins sem sér um að koma henni til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu spörum við öll og nýtum vörurnar betur.