Tryggðabönd ofin úr bambus þráðum
Tryggðaböndin eru ofin úr umhverfisvænum 400 þráða bambus þráðum sem eru einstakir að gæðum og mýkt.
Umhverfis rúmfötin er ofið kærleiksband sem við köllum tryggðabönd. Rúmfötin eru hvít með silfurbróderingu.Rúmfötunum er pakkað í glæsilegt dúkku/bangsa rúmföt með sömu bróderingu og rúmfötin.
Bambusinn í rúmfötunum er ofin úr 400 þráða 100% náttúrulegum bambus sem tryggir einstaka mýkt og góða endingu. Bambus þræðir hafa svipaða eiginleika og silki og eru einstakir að gæðum hitastillandi, mýktin, öndunin og rakadrægnin fara eins með húð og hár og silki.
Þvoist við 40° C (sjá þvottaleiðbeiningar).
Á undanförnum árum höfum við unnið með Rauða krossinum við að safna notuðum vörum. Þegar rúmfötin eru orðin lúin þá er upplagt að koma með þau til okkar og fá önnur með 20% afslætti. Rauði krossinn kemur rúmfötunum til þeirra sem geta nýtt hana aftur. Með þessu nýtast vörunar áfram hvort sem er til notkunar eða vefnaðar og náttúran græðir.